Hryllileg Skrímslasmiðja og Draugahús!
Skrímslin elska hrekkjavöku svo þetta árið ætlar Skrímslasmiðjan að bjóða uppá alveg hryllilegt draugahús. Þú getur svo búið til hrekkjavökuskrímsli á alveg hryllilega fáránlegu verði - aðeins 7500 kr!
En fyrir lítil hjörtu sem vilja ekki fara í draugahúsið verður einnig í boði andlitsmálning. Eitthvað fyrir alla!
Gjafabréfin okkar verða verða svo á 20% afslætti alla helgina í netverslun!

Draugahúsið!
Skrímslin hafa búið til hræðilegt draugahús og hlakka svo til að sýna þér! Frítt inn í draugahúsið, Öll velkomin. Draugahúsið verður opið:
Föstudag 31 október frá kl. 16-22
Laugardag 1. nóvember kl. 16-20
Sunnudag 2 nóvember kl. 16-18
Hryllileg Skríslasmiðja
Við höfum útbúið mikið af hryllilegum búkum, höndum, fótum, hárum, skottum og hornum! Þú getur búið til alveg HRÆÐILEGT skrímsli á einungis 7.500 kr.
Opnunartímar smiðjunnar:
Föstudag 31. okt - 12-22
Laugardag 1. nóv - 12-20
Sunnudag 2 nóv. - 12-18


Andlitsmálning
Fyrir lítil hjörtu sem þora ekki í draugahúsið er um að gera að kíkja til Önnu Lenu í andlitsmálningu. Það kostar ekkert!
